2. Hvað eru auðlindir? Náttúruauðlindir er samheiti yfir það sem menn geta nýtt sér í náttúrunni, annað hvort til þess að lifa af eða til þess að auka lífsgæði.
3. Auðlindir skiptast í... Lífrænar: skógar og afurðir þeirra, dýr og afurðir þeirra, fiskar og aðrar sjávarlífverur, fuglar og afurðir þeirra. Lífvana: landsvæði, vatn, loft, málmar í jörðu, s.s. gull, járn, kopar, silfur og fleiri. Kol, olía og jarðgas: eru í raun leifar af lífrænu efni en á að flokka það sem lífrænar auðlindir?
4. Auðlindir skiptast í... Aðgengilegar: þær auðlindir sem búið er að mæla eða kortleggja og verið er að nýta kallast aðgengilegar. Nýting þeirra fer eftir kostnaði og tækni – auðlindir eru sjaldan nýttar nema hafa megi af þeim hagnað. Þannig er til dæmis sólarorka lítið nýtt í dag vegna þess að tæknin dugar ekki til að skapa hagnað. Mögulegar: þær auðlindir sem talið er að megi finna á tilteknu svæði en ekki eru enn nýttar kallast mögulegar. Dæmi um slíkt eru olíulindir sem að öllum líkindum eru undir jarðlögum á einhverjum stöðum en ekki hefur verið borað eftir.
5. Auðlindir skiptast í... Endurnýjanlegar: þær auðlindir sem eru til í slíku magni að nýting manna á þeim gengur ekki á birgðirnar kallast endurnýjanlegar. Sumar munu alltaf verða til, eins og sólskin, vindur og vatn. Aðrar endurnýja mennirnir sjálfir, til dæmis með því að gróðursetja nýjar plöntur eftir uppskeru. Óendurnýjanlegar: auðlindir sem myndast á löngum tímabilum í jarðsögunni eru þess eðlis að nýting manna gengur hratt á þær og því ganga þær fyrr eða síðar til þurrðar. Málma má endurnýta með því að bræða þá niður. Kol og olía eru ekki endurnýtanleg og munu því klárast endanlega.
6. Hvernig nýta menn auðlindir: Akuryrkja: Ýmsar jurtir eru ræktaðar og nýttar til að búa til mat, eldsneyti, fóður og trefjar. Loft, vindur og andrúmsloft: Vindorka, hreint loft, hlýtt veður. Gróður: Matur, skraut, lyf, timbur. Dýr: Matur, gæludýr, dráttardýr, dýragarðar. Kol, olía, jarðmálmar Eldsneyti, skartgripir, margskonar iðnaður. Skógar Byggingatimbur, eldiviður, ávextir. Beitiland Fyrir búfénað. Jarðvegur Fyrir akuryrkju. Höf, vötn, ár og fossar Vatnsorka, fiskveiðar, ferðamannaiðnaður.