Í þessari ferð er áhersla lögð á að njóta útivistar á þessu yndislega Alpasvæði. Daglega bjóðast ein til þrjár mismunandi gönguferðir, þannig að hver og einn getur valið ferð sem hentar. Gönguleiðirnar eru mjög vel merktar og liggja um dali og fjöll sem skarta sínu fegursta. Einstakt tækifæri til að vera úti, hreyfa sig og slaka á í lok dags í skemmtilegum félagsskap.
Beginners Guide to TikTok for Search - Rachel Pearson - We are Tilt __ Bright...
Gönguferð Bændaferða | Trítlað við Zell am See | 17. - 24. maí
1. Trítlað við Zell am See 17. – 24. maí 2014
Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir
2. Trítlað við Zell am See
• Í þessari ferð er áhersla lögð á að njóta útivistar á
þessu yndislega Alpasvæði.
• Daglega bjóðast ein til þrjár mismunandi gönguferðir,
þannig að hver og einn getur valið ferð sem hentar.
• Gönguleiðirnar eru mjög vel merktar og liggja um dali
og fjöll sem skarta sínu fegursta.
• Einstakt tækifæri til að vera úti, hreyfa sig og slaka á í
lok dags í skemmtilegum félagsskap.
5. Hótel Kaprunerhof
Glæsilegt 4ra stjörnu hótel í
miðbæ Kaprun, við fjallsrætur
Kitzsteinhorn sem er eitt af
hæstu fjöllum Austurríkis.
Herbergin eru öll vel búin með
sturtu/baðkeri, minibar,
sjónvarpi, öryggisskáp, síma,
hárþurrku og internet aðgangi.
Á hótelinu er hlýleg heilsulind
með mismunandi gufuböðum,
nuddpotti og svæði þar sem gott
er að slaka á í vatnsrúmum.
6. Trítlað við Zell am See
• Almenningssamgöngur notaðar til að fara á
upphafsstað göngu eða heim á hótel að lokinni
göngu.
• Kláfar notaðir m.a. ef einhverjir vilja hafa dagana
styttri og einungis ganga upp í móti.
• Farið í hefðbundið austurrískt fjallasel, þar sem hægt
er að fræðast um hvernig ostar og smjör er búið til.
• Hádegisverður snæddur í fjallaskálum
11. Farið í dagsferð til Saalbach – Hinterglemm
Gengið frá bænum
Lengau til Lindlingalm
Þar er fræg útsýnisleið,
kölluð „Golden Gate brúin“
sem hægt væri að ganga
12. Trítlað við Zell am See
Verð ferðar 178.800 kr. á mann í tvíbýli
Innifalið:
Flug með Icelandair og flugvallarskattar
Ferðir á milli flugvallarins í München og hótelsins í Kaprun
Gisting í tveggja manna herbergi með baði á fjögurra stjörnu hóteli í Kaprun
Morgunverðarhlaðborð með heilsuhorni
Vel útilátinn 4 rétta kvöldverður með salatbar
Á sunnudögum er boðið uppá 7 rétta „gala kvöldverð“
Síðdegiskaffi með kökuhlaðborði á hótelinu
Aðgangur að öllu því sem heilsulindin hefur upp á að bjóða
Baðsloppur og inniskór fyrir dvölina
Frítt internet á hótelinu ( bæði á herbergjum og í móttöku )
Göngudagskrá
Leiðsögn staðarleiðsögumanns í gönguferðum
Íslensk fararstjórn