2. Dalvík
Dalvíkin er draumablá
dýrðleg til að sjá.
Dalvíkin er draumablá
dýrðleg til að sjá.
Ofar stendur Upsafjall
eins og gamall karl.
Sólin skín á stein og stekk
og stúlkur í okkar bekk.
3. Sumarnótt
Kemur af hugans hafi
heitust ein sumarnótt.
Glampi á gullnu rafi
gleðin þá sumarnótt.
Leikur á lítill vafi
Lofnar var sumarnótt.
4. Fang
Mæti þér nú,
Tröllaskagi,
týni úr fangi þér
myndir
og steina,
dýjagrænt, mjúkt og hrjóstrugt,
síkvikt landið,
himinblátt hafið,
sem tók...
5. Söknuður
Á enda veraldar
sólblár himinn,
og ský úr bómull.
Grásilfruð strá
hrjúf á vanga,
vagga úr grasi.
Rekur á huga
seint gleymdur tími.
Týnist í þrá
og þögn.
6. Rof
Í berg numin
bjó hugur
í ei stað
dillað
var hjarta
í stein runnið
hjarta
þitt
brast
strengur.
7. Gluggi í þríeinum spegli
speglast stund
í stað
alkyrrð
heitt andartak
svo ólgar
hjá
9. Bolero
Eins og blæöspin
kliðar í andvara vorsins
eins og stráin
bærast í golunni hægt
eins og bárurnar
freyða við bakka vatnsins
eins og kólgan
ólmast við klettótta strönd
voru dagarnir þeir
voru atlotin þín
10. Óráð
Svo heit
nóttin,
krefjandi,
dregur þig á tálar,
leggst
þétt að þér,
sefar og egnir,
teygar hug þinn
óræð,
strýkur hlæjandi
hár þitt
undir morgun
fálma
hendur þínar eftir
engu.
11. Hækur
Í vornótt hvítri
vappar mófugl um lyngmó
sígur rauðgul sól.
Fjárhúsið rökkvað
Fluga suðar í glugga
Værð yfir ánum
12. Hækur
Sólin tindrandi
í svalgrænu úthafi
freyðir um stefnið
Úthafsins eyja
sandur og sæbarið grjót
hvönnin gul og græn
Dauðir krossfiskar
er brimaldan fjarar út
á svörtum sandi