6. hvað höfum við – hvað gerum við?
Í framhaldsfræðslukerfinu höfum þegar margt að byggja á þó það sé úr hluta þess
kerfis sem skýrsluhöfundar telja að þurfi að verða til:
• Raunfærnimatskerfi sem verið er að víkka út
• Hæfniramma sem samkomulag er um
• Flottar hæfnigreiningar starfa
• Bókun í kjarasamningum sem unnið er að um mat á námi eða raunfærni til
launa á grundvelli hæfnigreininga.
Það þarf að breyta því hvernig við hugsum um menntun, færni og skóla - tökum
umræðuna.
Störf framtíðarinnar krefjast breyttar menntunar og hæfni - greinum það í
sameiningu – ekki þó í eitt skipti fyrir öll ☺
Auka þarf skilning í fyrirtækjum á skipulagðri færniþróun – með almennri umræðu
og fyrirmyndum sem sýna fram á gildið.
Færniþróun í fyrirtækjum – margt í gangi – meira þarf til.
Norrænt verkefni um hvað skipulögð færniþróun gefur fyrirtækjum í arð.