Beginners Guide to TikTok for Search - Rachel Pearson - We are Tilt __ Bright...
Ítalskur fíkju og súkkulaðiís
1. Ítalskur fíkju- og súkkulaðiís Sætur og bragðmikill ís sem er sérlega mikið hnossgæti með öllum súkkulaðiréttum.
2. Innihald Uppskriftin er handa 4-6 manns. 250 g þurrkaðar fíkjur, smátt saxaðar 2 dl mjólk, köld 2½ dl rjómi, þeyttur 50 g Síríus Konsum 70% súkkulaði, fínt saxað
3. Aðferð Setjið fíkjur og mjólk í matvinnsluvél og vinnið mjög vel saman. Blandið fíkjumaukinu varlega saman við þeytta rjómann ásamt súkkulaðinu. Setjið ísblönduna svo í ísvél og látið vélina vinna samkvæmt leiðbeiningum eða setjið ísinn í plastílát og síðan í frysti. Ef ekki er notuð ísvél er gott að hræra nokkrum sinnum í ísnum á meðan hann er að frjósa.
4. Aðferð Þessi ís geymist ekki mikið lengur en 5 daga í frosti. Verði ykkur að góðu!