SlideShare ist ein Scribd-Unternehmen logo
1 von 2
Downloaden Sie, um offline zu lesen
Buffettology
                                   Már Wolfgang Mixa

                         Höfundar: Mary Buffett og David Clark

        „Warren hefur oft sagt að fólk tæki færri slæmar ákvarðanir tengdar
fjárfestingum ef fjöldi þeirra væri takmarkaður við tíu á lífsleiðinni. Aðeins tíu.
[...] Warren telur að það sé alvarleikinn, sem fylgir spurningunni hverju eigi að
fjárfesta í og á hvaða verði, sem minnki áhættuna.” (M. Buffett og Clark, bls. 174.)

         Frægasti núlifandi fjárfestir heims er Warren Edward Buffett, rúmlega sjötugur
Omaha-búi í Nebraska-fylki sem lifir einföldu lífi þrátt fyrir frægð og gífurlegan auð.
Eitt af því sem aðgreinir hann frá flestum þekktum fjárfestum er að hann hefur hingað
til ekki skrifað bók um líf sitt og fjárfestingatækni. Helst hefur verið hægt að glöggva
sig á sýn hans á fjárfestingum með því að lesa ársskýrslur fjárfestingarfyrirtækis hans,
Berkshire Hathaway (www.berkshirehathaway.com) og bókina The Intelligent Investor
sem var skrifuð af læriföður hans, Benjamin Graham, en Buffett aðstoðaði við síðari
uppfærslur bókarinnar. Auk þess hefur lestur bókarinnar Common Stocks and
Uncommon Profits eftir Philip Fisher þótt veita innsýn í eigindlega fjárfestingartækni
Buffetts, en kenningar Fisher hafa verið mikill áhrifaþáttur í ákvarðanatöku Buffetts í
gegnum tíðina. Vegna takmarkaðra skrifa Buffetts sjálfs hafa nokkrar bækur verið
gefnar út um hann, bæði varðandi fjárfestingar hans og einnig nokkurskonar ævisögur.
Fyrir nokkrum árum kom út bókin Buffettology: The Previously Unexplained
Techniques That Have Made Warren Buffett The World´s Most Famous Investor eftir
Mary Buffett og David Clark. Á bakkápu hennar er tekið fram að ekki sé um að ræða
einhverskonar æviágrip, heldur sé áhersla bókarinnar að kenna fólki aðferðir hans í
bæði megindlegum og eigindlegum skilningi, eins og titill hennar gefur til kynna. Tvær
grímur renna þó væntanlega á margan lesandann þegar í ljós kemur við inngang
bókarinnar að annar höfunda er fyrrverandi tengdadóttir umrædds fjárfestis. Ekki
minnkar tortryggnin þegar fram kemur að hún hafi afþakkað fjölmörg boð um að selja
kjaftasögur varðandi Buffett fjölskylduna fyrir fúlgur fjár en hafi þess í stað ákveðið að
nýta innsýn sína í heim Buffetts til að skrifa bók sem fjalli með einföldum hætti um
fjárfestingaraðferðir hans með þeim hætti að sem flestir gætu skilið þær. Bókin er sett
upp með þeim hætti að kaflar eru stuttir og einblínt er kerfisbundið á einu atriði í einu.
         Við lestur bókarinnar kemur þó fljótlega í ljós að meira er spunnið í hana en það
að nafnið Buffett sé áberandi á kápunni. Í fyrri hlutanum er sjónum aðallega beint að
helstu atriðum sem skipta Buffett máli í tengslum við eigindlegar (qualitative) hliðar á
fjárfestingatækni. Litið er á þá þætti sem nauðsynlegir eru til þess að fyrirtæki gæti
talist vera vænlegir fjárfestingarkostur, bæði varðandi stöðu þess innan síns geira og
einnig hvort fjárfesting í geiranum sjálfum gæti talist vera skynsamleg fjárfesting. Fram
kemur að Buffett fylgir heimspeki (eða öllu heldur aga) Grahams að fjárfestingar eigi
að ákvarðast út frá viðskiptalegu sjónarmiði sem ekki má stjórnast af tilfinningum
heldur rökrænni hyggju. Þannig er ekki aðeins auðveldara að ákveða hvert beina eigi
fjárfestingum heldur einnig hvaða fjárfestingar beri að varast. Vænlegir
fjárfestingarmöguleikar hafa að öllu jöfnu ákveðna þætti sem eru svipaðir. Oft á tíðum
eru slíkir vænlegir fjárfestingarkostir þó dýrt verðlagðir af markaðinum. Það þarf því
stundum að sýna þolinmæði við að bíða eftir því að slík fjárfestingartækifæri
annaðhvort falli það mikið í virði að tímabært sé að fjárfesta í þeim eða að fjárfesta í
þeim þegar að markaðurinn hefur vanmetið vænkandi hag fyrirtækisins. Hægt er að
segja í stuttu máli að slík fjárfestingarstefna snúist einungis um tvö atriði, hvað eigi að
kaupa og á hvaða verði. Síðari hluti bókarinnar snýst meira í kringum tölfræðileg atriði
varðandi fjárfestingartækni Buffetts. Skilmerkilega kemur fram hvaða rauði þráður
hefur fylgt fjárfestingartækni Buffett í gegnum tíðina út frá tölfræðilegu sjónarmiði,
meðal annars þær ávöxtunarkröfur sem hann gerir til fjárfestinga sinna og væntan vöxt
fyrirtækis. Sýnt er með hvaða hætti er að nota tölfræðilega úrvinnslu með aðstoð
reiknivélar sem er góðra gjalda vert, en hugsanlega hefði verið betra að sýna slíkt með
aðstoð töflureiknis.
         Það er áhugavert hvernig fjárfestingartækni Buffetts er aðgreind í bókinni frá
aðferðum Graham, læriföður hans. Dregið er saman hvernig hugmyndir og
fjárfestingaraðferðir Grahams og Fishers áttu stóran þátt í sköpun fjárfestisins Buffetts.
Þetta er gert samhliða skýringum á vinnuferli Buffetts til að draga fram áherslur á það
sem máli skiptir. Auk þess kemur fram hversu mikið tillit Buffett tekur til skattalegra
atriða í sínum fjárfestingarákvörðunum, sem reyndar skiptir íslenska lesendur minna
máli vegna tvísköttunarsamnings Íslands og Bandaríkjanna og lágs fjármagnstekjuskatts
á Íslandi.
         Buffettology er svo auðskiljanlega uppsett að það er nánast vandræðalegt að
finnast eitthvað varið í hana. Þrátt fyrir einfaldleikann er hún að sama skapi lífleg
lesning þó svo að orðalagið sé hugsanlega of amerískt fyrir smekk sumra. Í upphafi
bókar er sagt að tilgangur hennar sé að kenna hvernig hægt sé að temja sér
fjárfestingartækni í anda Warrens Buffetts og tekst það með ágætum. Skipulögð
uppsetning hennar samhliða augljóslega víðtækri þekkingu meðhöfundar á sögu
fjárfestinga og aðferða Buffetts gerir það að verkum að hægt er að mæla eindregið með
henni fyrir alla þá sem vilja kynna sér fjárfestingartækni Buffetts.

          Birtist í Morgunblaðinu, 28.ágúst, 2003

Weitere ähnliche Inhalte

Andere mochten auch

Andere mochten auch (14)

chukydanhgialogo
chukydanhgialogochukydanhgialogo
chukydanhgialogo
 
APARATO REPRODUCTOR HUMANO
APARATO REPRODUCTOR HUMANOAPARATO REPRODUCTOR HUMANO
APARATO REPRODUCTOR HUMANO
 
Practicapp 1
Practicapp 1Practicapp 1
Practicapp 1
 
62
6262
62
 
20020829 den of thieves
20020829 den of thieves20020829 den of thieves
20020829 den of thieves
 
Administracion
AdministracionAdministracion
Administracion
 
ขนมไทย
ขนมไทยขนมไทย
ขนมไทย
 
RÍO TAJO
RÍO TAJORÍO TAJO
RÍO TAJO
 
Retol silvia soler
Retol silvia solerRetol silvia soler
Retol silvia soler
 
Servidores gov3031(1)
Servidores gov3031(1)Servidores gov3031(1)
Servidores gov3031(1)
 
Fisiologia muscular informatica
Fisiologia muscular informaticaFisiologia muscular informatica
Fisiologia muscular informatica
 
De que están hechos los cosméticos y los productos de aseo personal
De que están hechos los cosméticos y los productos de aseo personalDe que están hechos los cosméticos y los productos de aseo personal
De que están hechos los cosméticos y los productos de aseo personal
 
Jhoninffa zambrano
Jhoninffa zambranoJhoninffa zambrano
Jhoninffa zambrano
 
Animadores recreativos
Animadores recreativosAnimadores recreativos
Animadores recreativos
 

Mehr von Mar Wolfgang Mixa

20090225 adskilnadur fjarmalathjonustu.doc
20090225 adskilnadur fjarmalathjonustu.doc20090225 adskilnadur fjarmalathjonustu.doc
20090225 adskilnadur fjarmalathjonustu.docMar Wolfgang Mixa
 
2022 04 12 Nefndasvið Alþingis fyrsta íbúð leigendur umsögn
2022 04 12 Nefndasvið Alþingis fyrsta íbúð leigendur umsögn 2022 04 12 Nefndasvið Alþingis fyrsta íbúð leigendur umsögn
2022 04 12 Nefndasvið Alþingis fyrsta íbúð leigendur umsögn Mar Wolfgang Mixa
 
Þú veist ekki hvaða húsnæði þú ferð í næst: Tvísýnleiki og upplifun leigjenda...
Þú veist ekki hvaða húsnæði þú ferð í næst: Tvísýnleiki og upplifun leigjenda...Þú veist ekki hvaða húsnæði þú ferð í næst: Tvísýnleiki og upplifun leigjenda...
Þú veist ekki hvaða húsnæði þú ferð í næst: Tvísýnleiki og upplifun leigjenda...Mar Wolfgang Mixa
 
Sól og sandur ferðir íslendinga til kanaríeyja loftsdóttir arnardóttir mixa g...
Sól og sandur ferðir íslendinga til kanaríeyja loftsdóttir arnardóttir mixa g...Sól og sandur ferðir íslendinga til kanaríeyja loftsdóttir arnardóttir mixa g...
Sól og sandur ferðir íslendinga til kanaríeyja loftsdóttir arnardóttir mixa g...Mar Wolfgang Mixa
 
Nations of bankers and brexiteers - nationalism and hidden money
Nations of bankers and brexiteers - nationalism and hidden moneyNations of bankers and brexiteers - nationalism and hidden money
Nations of bankers and brexiteers - nationalism and hidden moneyMar Wolfgang Mixa
 
The opening of Costco in Iceland: Unexpected meanings of globalized phenomenon
The opening of Costco in Iceland: Unexpected meanings of globalized phenomenonThe opening of Costco in Iceland: Unexpected meanings of globalized phenomenon
The opening of Costco in Iceland: Unexpected meanings of globalized phenomenonMar Wolfgang Mixa
 
THE ICELANDIC BUBBLE AND BEYOND INVESTMENT LESSONS FROM HISTORY AND CULTURA...
THE ICELANDIC BUBBLE AND BEYOND   INVESTMENT LESSONS FROM HISTORY AND CULTURA...THE ICELANDIC BUBBLE AND BEYOND   INVESTMENT LESSONS FROM HISTORY AND CULTURA...
THE ICELANDIC BUBBLE AND BEYOND INVESTMENT LESSONS FROM HISTORY AND CULTURA...Mar Wolfgang Mixa
 
The Icelandic bubble and beyond investment lessons from history and cultura...
The Icelandic bubble and beyond   investment lessons from history and cultura...The Icelandic bubble and beyond   investment lessons from history and cultura...
The Icelandic bubble and beyond investment lessons from history and cultura...Mar Wolfgang Mixa
 
Individualistic Vikings: Culture, Economics and Iceland
Individualistic Vikings: Culture, Economics  and Iceland Individualistic Vikings: Culture, Economics  and Iceland
Individualistic Vikings: Culture, Economics and Iceland Mar Wolfgang Mixa
 
Lífeyrissjóðir – helstu mál á dagskrá næstu árin
Lífeyrissjóðir – helstu mál á dagskrá næstu árinLífeyrissjóðir – helstu mál á dagskrá næstu árin
Lífeyrissjóðir – helstu mál á dagskrá næstu árinMar Wolfgang Mixa
 
Learning from the worst behaved icelands financial crisis and nordic comparis...
Learning from the worst behaved icelands financial crisis and nordic comparis...Learning from the worst behaved icelands financial crisis and nordic comparis...
Learning from the worst behaved icelands financial crisis and nordic comparis...Mar Wolfgang Mixa
 
Exista Right place waiting for the right time
Exista Right place waiting for the right timeExista Right place waiting for the right time
Exista Right place waiting for the right timeMar Wolfgang Mixa
 
2011 05 23 (o)verdtryggd lan
2011 05 23 (o)verdtryggd lan2011 05 23 (o)verdtryggd lan
2011 05 23 (o)verdtryggd lanMar Wolfgang Mixa
 
20110126 hrun ibudarhusnaedi og facebook
20110126 hrun ibudarhusnaedi og facebook20110126 hrun ibudarhusnaedi og facebook
20110126 hrun ibudarhusnaedi og facebookMar Wolfgang Mixa
 
Áfram á rauðu ljósi - Fjármálahrunið á Íslandi og reynsla Norðurlandanna
Áfram á rauðu ljósi - Fjármálahrunið á Íslandi og reynsla NorðurlandannaÁfram á rauðu ljósi - Fjármálahrunið á Íslandi og reynsla Norðurlandanna
Áfram á rauðu ljósi - Fjármálahrunið á Íslandi og reynsla NorðurlandannaMar Wolfgang Mixa
 
Lanareiknir verdtryggd overdtryggd samanburdur og raungreidslur 20101208
Lanareiknir verdtryggd overdtryggd samanburdur og raungreidslur 20101208Lanareiknir verdtryggd overdtryggd samanburdur og raungreidslur 20101208
Lanareiknir verdtryggd overdtryggd samanburdur og raungreidslur 20101208Mar Wolfgang Mixa
 
20101126 saga um skulduga þjóð
20101126 saga um skulduga þjóð20101126 saga um skulduga þjóð
20101126 saga um skulduga þjóðMar Wolfgang Mixa
 
20101110 skilgreining á hlutverkum banka og fyrirtækja
20101110 skilgreining á hlutverkum banka og fyrirtækja20101110 skilgreining á hlutverkum banka og fyrirtækja
20101110 skilgreining á hlutverkum banka og fyrirtækjaMar Wolfgang Mixa
 
20100929 vr skyrsla f milligongu stofnun um fjarmalalaesi verdtrygging fjarsk...
20100929 vr skyrsla f milligongu stofnun um fjarmalalaesi verdtrygging fjarsk...20100929 vr skyrsla f milligongu stofnun um fjarmalalaesi verdtrygging fjarsk...
20100929 vr skyrsla f milligongu stofnun um fjarmalalaesi verdtrygging fjarsk...Mar Wolfgang Mixa
 

Mehr von Mar Wolfgang Mixa (20)

20090225 adskilnadur fjarmalathjonustu.doc
20090225 adskilnadur fjarmalathjonustu.doc20090225 adskilnadur fjarmalathjonustu.doc
20090225 adskilnadur fjarmalathjonustu.doc
 
2022 04 12 Nefndasvið Alþingis fyrsta íbúð leigendur umsögn
2022 04 12 Nefndasvið Alþingis fyrsta íbúð leigendur umsögn 2022 04 12 Nefndasvið Alþingis fyrsta íbúð leigendur umsögn
2022 04 12 Nefndasvið Alþingis fyrsta íbúð leigendur umsögn
 
Þú veist ekki hvaða húsnæði þú ferð í næst: Tvísýnleiki og upplifun leigjenda...
Þú veist ekki hvaða húsnæði þú ferð í næst: Tvísýnleiki og upplifun leigjenda...Þú veist ekki hvaða húsnæði þú ferð í næst: Tvísýnleiki og upplifun leigjenda...
Þú veist ekki hvaða húsnæði þú ferð í næst: Tvísýnleiki og upplifun leigjenda...
 
Sól og sandur ferðir íslendinga til kanaríeyja loftsdóttir arnardóttir mixa g...
Sól og sandur ferðir íslendinga til kanaríeyja loftsdóttir arnardóttir mixa g...Sól og sandur ferðir íslendinga til kanaríeyja loftsdóttir arnardóttir mixa g...
Sól og sandur ferðir íslendinga til kanaríeyja loftsdóttir arnardóttir mixa g...
 
Nations of bankers and brexiteers - nationalism and hidden money
Nations of bankers and brexiteers - nationalism and hidden moneyNations of bankers and brexiteers - nationalism and hidden money
Nations of bankers and brexiteers - nationalism and hidden money
 
The opening of Costco in Iceland: Unexpected meanings of globalized phenomenon
The opening of Costco in Iceland: Unexpected meanings of globalized phenomenonThe opening of Costco in Iceland: Unexpected meanings of globalized phenomenon
The opening of Costco in Iceland: Unexpected meanings of globalized phenomenon
 
THE ICELANDIC BUBBLE AND BEYOND INVESTMENT LESSONS FROM HISTORY AND CULTURA...
THE ICELANDIC BUBBLE AND BEYOND   INVESTMENT LESSONS FROM HISTORY AND CULTURA...THE ICELANDIC BUBBLE AND BEYOND   INVESTMENT LESSONS FROM HISTORY AND CULTURA...
THE ICELANDIC BUBBLE AND BEYOND INVESTMENT LESSONS FROM HISTORY AND CULTURA...
 
The Icelandic bubble and beyond investment lessons from history and cultura...
The Icelandic bubble and beyond   investment lessons from history and cultura...The Icelandic bubble and beyond   investment lessons from history and cultura...
The Icelandic bubble and beyond investment lessons from history and cultura...
 
Individualistic Vikings: Culture, Economics and Iceland
Individualistic Vikings: Culture, Economics  and Iceland Individualistic Vikings: Culture, Economics  and Iceland
Individualistic Vikings: Culture, Economics and Iceland
 
Lífeyrissjóðir – helstu mál á dagskrá næstu árin
Lífeyrissjóðir – helstu mál á dagskrá næstu árinLífeyrissjóðir – helstu mál á dagskrá næstu árin
Lífeyrissjóðir – helstu mál á dagskrá næstu árin
 
Learning from the worst behaved icelands financial crisis and nordic comparis...
Learning from the worst behaved icelands financial crisis and nordic comparis...Learning from the worst behaved icelands financial crisis and nordic comparis...
Learning from the worst behaved icelands financial crisis and nordic comparis...
 
Exista Right place waiting for the right time
Exista Right place waiting for the right timeExista Right place waiting for the right time
Exista Right place waiting for the right time
 
2011 05 23 (o)verdtryggd lan
2011 05 23 (o)verdtryggd lan2011 05 23 (o)verdtryggd lan
2011 05 23 (o)verdtryggd lan
 
20110126 hrun ibudarhusnaedi og facebook
20110126 hrun ibudarhusnaedi og facebook20110126 hrun ibudarhusnaedi og facebook
20110126 hrun ibudarhusnaedi og facebook
 
Áfram á rauðu ljósi - Fjármálahrunið á Íslandi og reynsla Norðurlandanna
Áfram á rauðu ljósi - Fjármálahrunið á Íslandi og reynsla NorðurlandannaÁfram á rauðu ljósi - Fjármálahrunið á Íslandi og reynsla Norðurlandanna
Áfram á rauðu ljósi - Fjármálahrunið á Íslandi og reynsla Norðurlandanna
 
Lanareiknir verdtryggd overdtryggd samanburdur og raungreidslur 20101208
Lanareiknir verdtryggd overdtryggd samanburdur og raungreidslur 20101208Lanareiknir verdtryggd overdtryggd samanburdur og raungreidslur 20101208
Lanareiknir verdtryggd overdtryggd samanburdur og raungreidslur 20101208
 
20101126 saga um skulduga þjóð
20101126 saga um skulduga þjóð20101126 saga um skulduga þjóð
20101126 saga um skulduga þjóð
 
20101110 skilgreining á hlutverkum banka og fyrirtækja
20101110 skilgreining á hlutverkum banka og fyrirtækja20101110 skilgreining á hlutverkum banka og fyrirtækja
20101110 skilgreining á hlutverkum banka og fyrirtækja
 
20100929 vr skyrsla f milligongu stofnun um fjarmalalaesi verdtrygging fjarsk...
20100929 vr skyrsla f milligongu stofnun um fjarmalalaesi verdtrygging fjarsk...20100929 vr skyrsla f milligongu stofnun um fjarmalalaesi verdtrygging fjarsk...
20100929 vr skyrsla f milligongu stofnun um fjarmalalaesi verdtrygging fjarsk...
 
20090831 hvað er
20090831 hvað er20090831 hvað er
20090831 hvað er
 

20030828 buffettology

  • 1. Buffettology Már Wolfgang Mixa Höfundar: Mary Buffett og David Clark „Warren hefur oft sagt að fólk tæki færri slæmar ákvarðanir tengdar fjárfestingum ef fjöldi þeirra væri takmarkaður við tíu á lífsleiðinni. Aðeins tíu. [...] Warren telur að það sé alvarleikinn, sem fylgir spurningunni hverju eigi að fjárfesta í og á hvaða verði, sem minnki áhættuna.” (M. Buffett og Clark, bls. 174.) Frægasti núlifandi fjárfestir heims er Warren Edward Buffett, rúmlega sjötugur Omaha-búi í Nebraska-fylki sem lifir einföldu lífi þrátt fyrir frægð og gífurlegan auð. Eitt af því sem aðgreinir hann frá flestum þekktum fjárfestum er að hann hefur hingað til ekki skrifað bók um líf sitt og fjárfestingatækni. Helst hefur verið hægt að glöggva sig á sýn hans á fjárfestingum með því að lesa ársskýrslur fjárfestingarfyrirtækis hans, Berkshire Hathaway (www.berkshirehathaway.com) og bókina The Intelligent Investor sem var skrifuð af læriföður hans, Benjamin Graham, en Buffett aðstoðaði við síðari uppfærslur bókarinnar. Auk þess hefur lestur bókarinnar Common Stocks and Uncommon Profits eftir Philip Fisher þótt veita innsýn í eigindlega fjárfestingartækni Buffetts, en kenningar Fisher hafa verið mikill áhrifaþáttur í ákvarðanatöku Buffetts í gegnum tíðina. Vegna takmarkaðra skrifa Buffetts sjálfs hafa nokkrar bækur verið gefnar út um hann, bæði varðandi fjárfestingar hans og einnig nokkurskonar ævisögur. Fyrir nokkrum árum kom út bókin Buffettology: The Previously Unexplained Techniques That Have Made Warren Buffett The World´s Most Famous Investor eftir Mary Buffett og David Clark. Á bakkápu hennar er tekið fram að ekki sé um að ræða einhverskonar æviágrip, heldur sé áhersla bókarinnar að kenna fólki aðferðir hans í bæði megindlegum og eigindlegum skilningi, eins og titill hennar gefur til kynna. Tvær grímur renna þó væntanlega á margan lesandann þegar í ljós kemur við inngang bókarinnar að annar höfunda er fyrrverandi tengdadóttir umrædds fjárfestis. Ekki minnkar tortryggnin þegar fram kemur að hún hafi afþakkað fjölmörg boð um að selja kjaftasögur varðandi Buffett fjölskylduna fyrir fúlgur fjár en hafi þess í stað ákveðið að nýta innsýn sína í heim Buffetts til að skrifa bók sem fjalli með einföldum hætti um fjárfestingaraðferðir hans með þeim hætti að sem flestir gætu skilið þær. Bókin er sett upp með þeim hætti að kaflar eru stuttir og einblínt er kerfisbundið á einu atriði í einu. Við lestur bókarinnar kemur þó fljótlega í ljós að meira er spunnið í hana en það að nafnið Buffett sé áberandi á kápunni. Í fyrri hlutanum er sjónum aðallega beint að helstu atriðum sem skipta Buffett máli í tengslum við eigindlegar (qualitative) hliðar á fjárfestingatækni. Litið er á þá þætti sem nauðsynlegir eru til þess að fyrirtæki gæti talist vera vænlegir fjárfestingarkostur, bæði varðandi stöðu þess innan síns geira og einnig hvort fjárfesting í geiranum sjálfum gæti talist vera skynsamleg fjárfesting. Fram kemur að Buffett fylgir heimspeki (eða öllu heldur aga) Grahams að fjárfestingar eigi að ákvarðast út frá viðskiptalegu sjónarmiði sem ekki má stjórnast af tilfinningum heldur rökrænni hyggju. Þannig er ekki aðeins auðveldara að ákveða hvert beina eigi fjárfestingum heldur einnig hvaða fjárfestingar beri að varast. Vænlegir fjárfestingarmöguleikar hafa að öllu jöfnu ákveðna þætti sem eru svipaðir. Oft á tíðum eru slíkir vænlegir fjárfestingarkostir þó dýrt verðlagðir af markaðinum. Það þarf því stundum að sýna þolinmæði við að bíða eftir því að slík fjárfestingartækifæri annaðhvort falli það mikið í virði að tímabært sé að fjárfesta í þeim eða að fjárfesta í þeim þegar að markaðurinn hefur vanmetið vænkandi hag fyrirtækisins. Hægt er að segja í stuttu máli að slík fjárfestingarstefna snúist einungis um tvö atriði, hvað eigi að
  • 2. kaupa og á hvaða verði. Síðari hluti bókarinnar snýst meira í kringum tölfræðileg atriði varðandi fjárfestingartækni Buffetts. Skilmerkilega kemur fram hvaða rauði þráður hefur fylgt fjárfestingartækni Buffett í gegnum tíðina út frá tölfræðilegu sjónarmiði, meðal annars þær ávöxtunarkröfur sem hann gerir til fjárfestinga sinna og væntan vöxt fyrirtækis. Sýnt er með hvaða hætti er að nota tölfræðilega úrvinnslu með aðstoð reiknivélar sem er góðra gjalda vert, en hugsanlega hefði verið betra að sýna slíkt með aðstoð töflureiknis. Það er áhugavert hvernig fjárfestingartækni Buffetts er aðgreind í bókinni frá aðferðum Graham, læriföður hans. Dregið er saman hvernig hugmyndir og fjárfestingaraðferðir Grahams og Fishers áttu stóran þátt í sköpun fjárfestisins Buffetts. Þetta er gert samhliða skýringum á vinnuferli Buffetts til að draga fram áherslur á það sem máli skiptir. Auk þess kemur fram hversu mikið tillit Buffett tekur til skattalegra atriða í sínum fjárfestingarákvörðunum, sem reyndar skiptir íslenska lesendur minna máli vegna tvísköttunarsamnings Íslands og Bandaríkjanna og lágs fjármagnstekjuskatts á Íslandi. Buffettology er svo auðskiljanlega uppsett að það er nánast vandræðalegt að finnast eitthvað varið í hana. Þrátt fyrir einfaldleikann er hún að sama skapi lífleg lesning þó svo að orðalagið sé hugsanlega of amerískt fyrir smekk sumra. Í upphafi bókar er sagt að tilgangur hennar sé að kenna hvernig hægt sé að temja sér fjárfestingartækni í anda Warrens Buffetts og tekst það með ágætum. Skipulögð uppsetning hennar samhliða augljóslega víðtækri þekkingu meðhöfundar á sögu fjárfestinga og aðferða Buffetts gerir það að verkum að hægt er að mæla eindregið með henni fyrir alla þá sem vilja kynna sér fjárfestingartækni Buffetts. Birtist í Morgunblaðinu, 28.ágúst, 2003